Vinningar 2002  

Hér koma upplýsingar um vinninga í Jólavefnum í dagatali og gestabók. Ég hef  fengið frábæra aðila til samstarfs  og bið  alla að skoða þeirra vörur og heimasíður og láta þau njóta þess hve almennileg þau eru og fyrir þátttöku þeirra í því að hafa alvöru vinninga og gera þetta allt saman skemmtilegt.

Enn og aftur sýna þeir mikla velvild í garð Jólavefsins og okkar allra, þeir ljúfu félagar í Bókaútgáfunni Hólum. Eftirfarandi bækur sem komu allar út í ár nema tvær  verða í vinninga alla daga á Jólavefnum, þetta eru sannkallaðir gullmolar eins og þið sjáið hér að neðan.  Að sjálfsögðu fást bækur Hólaútgáfunnar í öllum almennum bókaverslunum. Ef þið viljið nálgast bækur hjá þeim félögum:

Guðjón Ingi Eiríksson, Jörfabakka 24, 109 Reykjavík 587-2619

Jón Hjaltason Byggðavegi 101b, 600 Akureyri 462-2515

Netfang Þeirra Hólamanna er holar@simnet.is

 

Bestu Barnabrandararnir

Mega Bögg.

Aldrei betri, aldrei fyndnari. Bók sem enginn getur verið án - ekki einu sinni langafi og er hann þó ekkert barn.

Spurningabókin 2002.

Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason

Bókin sem veitir í senn skemmtun og fræðslu. Spurningar við allra hæfi og sígildar gátur um allt milli himins og jarðar

Ævintýri Nonna.

NONNI OG MANNI FARA Á SJÓ.

Ævintýri Nonna birtist hér stytt og endursagt. Bræðurnir reyna að tæla fiskana upp úr sjónum en lenda í þoku og hvalavöðu og eru hætt komnir. Bráðskemmtileg og spennandi bók fyrir börn og unglinga sem og fullorðna.

MAMMA MÖ RENNIR SÉR Á SLEÐA

Mamma Mö hefur farið sigurför um Norðurlönd og nú kemur hún til Íslands og hefur heillað börn og fullorðna og var þegar valin bók mánaðarins á bókmenntavef Borgarbókasafnsins. Kýrin Mamma Mö er engri lík og myndir Sven Nordqvist eru vafalítið með þeim skemmtilegri sem birst hafa í barnabók til þessa

VITFIRRINGUR KEISARANS

Hvernig fer fyrir þeim sem segir harðstjóranum sannleikann? Getur verið að keisarinn álíti hann geðveikan? Vitfirringur keisarans er þrungin spennu ástar- og sakamálasögunnar en jafnframt dæmisaga um eðli og afleiðingar valds og harðstjórnar

Bein úr sjó.

Um fisk og fólk í Grýtubakkahreppi

Útgerðarsaga Grýtubakkahrepps er ótrúlegt ævintýri um smáplássið sem um tíma var ein stærsta útgerðarstöð landsins. Á einkar líflegan og skemmtilegan hátt segir Björn Ingólfsson þessa sögu sem spannar eina og hálfa öld, frá hákarlaveiðum upp úr 1850 til frystiskipaútgerðar undir lok 20. aldar. Bókin er ríkulega myndskreytt.

HITLER OG SEINNI HEIMSSTYRJÖLDIN
Var stríðið Hitler að kenna ?

Ekkert sagnfræðirit hefur vakið jafnmiklar og harðvítugar deilur og þessi bók þekktasta sagnfræðings Englendinga, A. J. P. Taylors, um Hitler og rætur seinni heimsstyrjaldar. Taylor hefur verið sakaður um að hvítþvo Hitler. Sjálfur segist hann hafa skrifað þessa bók til að svala forvitni sinni en til þess hafi hann orðið að horfa framhjá lífseigum goðsögnum um heimsstyrjöldina síðari. Um þetta rit segir Þór Whitehead að enginn sem vilji kynna sér uppruna ófriðarins geti ,,leyft sér að láta það framhjá sér fara." 

Sjósókn og Sjávarfang

Saga sjávarútvegs á Íslandi

Jón Þ Þór.

Hér er hrundið úr vör stórvirki í íslenskri útgáfusögu sem er 1. bindið af þremur í Sögu sjávarútvegs á Íslandi. Ekkert hefur skipt Íslendinga eins miklu máli og sjávaraflinn. Hann hefur gefið þjóðinni líf en líka krafist stórra fórna. Vegna hans löðuðust erlendir sjómenn að landinu og stundum urðu mannvíg út af fiskinum við Ísland. Hér rekur Jón Þ. Þór þessa sögu og fjallar um upphaf fiskveiða við Ísland, hina áhættusömu árabátaútgerð og ævintýralega öld seglskipanna.

Suðurnesjamenn

Gylfi Guðmundsson.

Hér láta þau gamminn geisa: Rúnar Júlíusson tónlistarmaður, Dagbjartur Einarsson útgerðarmaður, alþingismennirnir Sigríður Jóhannesdóttir og Hjálmar Árnason, Ellert Eiríksson fyrrum bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Reynir Sveinsson forstöðumaður Fræðasetursins í Sandgerði. Ennfremur fá lesendur að kynnast Jay D. Lane, sigmanni hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, sem vann einstakt björgunarafrek við Svörtuloft á Snæfellsnesi í fyrra. Hver er hann þessi hugaði en hógværi Bandaríkjamaður sem tekið hefur ástfóstri við Ísland? Suðurnesjamenn - hrífandi bók, sneisafull af fróðlegum frásögnum, hnyttnum og sorglegum, sem koma við sálartetrið í okkur öllum.

GULLKORN

Úr hugarheimi íslenskra barna  Halldór Þorsteinsson tók saman

Hér er safnað saman ótal tilsvörum barna sem varpa ljósi á heimssýn þeirra. Gullkorn er falleg bók um englana okkar; speki þeirra, falsleysi og einlægni en allt þetta endurspeglast í orðum barnsins sem sagði: ,,Maður getur alveg notað ömmu sína fyrir vin."

ÁFRAM ÍSLAND

Hér er fjallað um íslenska karlalandsliðið í handknattleik og frábæran árangur þess á síðasta Evrópumóti. Leikir liðsins eru krufnir til mergjar, sagt frá því sem gerðist á bak við tjöldin og strákunum okkar gerð góð skil, meðal annars í einstökum viðtölum við Ólaf Stefánsson, einn besta handboltamann heims, Sigfús Sigurðsson og Patrek Jóhannesson. Áfram Ísland - íþróttabókin í ár!

Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST
Gamansögur af íslenskum fjölmiðlamönnum

Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason ritstýrðu

Fjöldi mismæla í beinni útsendingu, klúðurslegar blaðauglýsingar, fyrirsagnir, fréttagreinar; hér er allt þetta og meira til! Ómar Ragnarsson situr í settinu - með settið bert. Þorgeir Ástvalds finnur 400 ára gamla íkorna. Ragnheiður Ásta syngur með Pavarotti. Ævar Kjartansson auglýsir svínarí. Þorgrímur Gestsson eltir forsetann. Agnes Braga hrellir Jónas Haralz. Guðjón Guðmundsson - Gaupi - stígur ekki feilnótu, Ingólfur Hannesson lýsir 4x400 metra stangarstökki og Sigmundur Ernir minnir á ellefu fréttir sem hefjast stundvíslega klukkan 22:30. Allt þetta og margt fleira í þessari bráðskemmtilegu bók sem þú - já, þú - verður að lesa.

ÆVINTÝRAHEIMAR

Ævintýri frá sex löndum sem heillað hafa börn um allan heim og fært þeim ljúfa drauma. Fallegar myndir hjálpa yngstu lesendunum að skilja ævintýrin um Mjallhvíti, Þyrnirós og fleiri sem hér er að finna í einstaklega fallegri bók.

 

GRÝLA
Gunnar Helgason

Gunnar Helgason leikari er landsþekktur fyrir líflega barnatíma sína í sjónvarpinu. Grýla er smitandi skemmtileg bók þar sem Gunnar segir börnunum frá jólahaldi Grýlu, Leppalúða og jólasveinanna ­ og jólakötturinn kemur við sögu. Grýla er heillandi saga, prýdd stórskemmtilegum myndum Þórarins Blöndals. Grýla er ómissandi jólabók á hverju heimili. Kom út 1997.

OF STÓR FYRIR ÍSLAND  ( 2001 )

Ævisaga Jóhanns risa Jón Hjaltason
Enginn Íslendingur hefur lifað jafn-sérkennilegu lífi og Jóhann Pétursson,
hæsti maður veraldar. Hér segir frá ævintýralegum lífsferli hans; barnæsku í Svarfaðardal, þrautalífi í Danmörku, betra lífi í Frakklandi og putalífi í
Þýskalandi. Árið 1945 fluttist Jóhann heim en þegar Íslendingar brugðust
honum hrökklaðist hann til Bandaríkjanna þar sem hann starfaði í stærsta og frægasta sirkus heims. Jóhann eignaðist dóttur sem hann sagði þó aldrei neinum frá. Hér er leyndardómsfullri hulunni svipt af þessari dóttur og samskiptum feðginanna. 
OF STÓR FYRIR ÍSLAND er einstök ævisaga, snilldarvel skráð af Jóni
Hjaltasyni sagnfræðingi sem síðastliðið ár var tilnefndur til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Mikill fjöldi ljósmynda frá einstæðri og ævintýralegri ævi Jóhanns prýða bókina.

RAUÐI HERINN  - saga Liverpool 1892-2001

Agnar Freyr Helgason og Guðjón Ingi Eiríksson. 
Liverpool er sigursælasta knattspyrnulið Englands. Þetta stórkostlega félag hefur átján sinnum orðið Englandsmeistari, sex sinnum bikarmeistari og jafnoft deildabikarmeistari, fjórum sinnum Evrópumeistari og þrívegis
Evrópumeistari félagsliða. Og ekki vantar knattspyrnustjörnurnar í glæsta
sögu þess: Roger Hunt, Ray Clemence, Kevin Keegan, Phil Thompson, Kenny Dalglish, Alan Hansen, Graeme Souness, Bruce Grobbelaar, Ian Rush, John Barnes, Peter Beardsley, Robbie Fowler, Sami Hyypia, Gary McAllister, Emile Heskey og Steven Gerrard, auk gullmolans Michael Owen; allt heimsþekktir knattspyrnumenn, sem láta hér að sér kveða svo um munar, ásamt mörgum öðrum. RAUÐI HERINN saga Liverpool 1892-2001 er kærkomin bók fyrir alla knattspyrnuunnendur. 

MANNKYNIÐ OG MUNÚÐIN -kynlífssaga mannsins.

Reay Tannahill Þýðing: Kristinn R. Ólafsson 
Saga kynlífs mannsins frá upphafi til vorra daga. Ótrúlegt verkefni sem
Tannahill leysir snilldarlega. Hún byrjar á upphafinu þegar maðurinn var að
breytast í herra konunnar, fikrar sig til Grikkja, Rómverja og kristinna
manna, og þaðan í dularfullan kynlífsheim Austurlanda. Fjallað er um gríska titrara, getnaðarvarnir á tímum Faraó, kynlífsleiðbeiningar Taoista,
tyrkneska geldinga og japanskar geishur - og er þá fátt eitt talið. Þegar
kemur fram á okkar tíma segir m. a. frá aðferð enskra kvenna til að
endurheimta meydóminn og kynlífsbyltingunni á 8. áratug 20. aldar.
MANNKYNIÐ OG MUNÚÐIN hefur hvarvetna hlotið mikið lof fyrir að sameina í eitt góða fræðimennsku og afar skemmtilega frásögn sem kemst afar vel til skila í frábærri þýðingu Kristins R. Ólafssonar.

 

Í ár styrkir sparisjóðurinn sendingarkostnað á vinningum. ( Klikkið á logoið)

 

Jólavefur Júlla 2002.