Minningarsíða - Kertin 2008 - 2009 - 2010 - 2011

Kerti fyrri ára   2004  -  2005  -  2006  -  2007

Kveiktu á kerti fyrir látinn ættingja eða vin sem þú vilt minnast.

Klikkaðu hér KVEIKJA Á KERTI  til að tendra ljós.

Í sorg og í gleði ég senda mun ljós..................

Kveiki á kerti fyrir hann pabba minn en hann lést árið 1992. Hann er alltaf í huga mér og ég bið Guð að vaka yfir honum. Ég bið jafnframt fyrir þeim sem síðar hafa farið heim í ljósið. Minning ykkar lifir.Ragnhildur.

 

 

Elselsku elsku besta mamma mín.. ég sakna þín svo sárt og allt er svo tómt og hjartað mitt er ennþá í þúsund molum sem ég verð alla æfi að pússla saman. Ég er enn að vona að þetta sé allt bara vondur draumur. En ég vona svo innilega að þér líði vel núna og ég veit að þú fylgist vel með okkur elsku mamma.

Mig langar til að biðja þig um að kveikja á fjórum kertum fyrir mig, til minningar um móður mína Þóreyju Ólafsdóttur sem varð bráðkvödd 6 September 2008, pabba minn Jóhann Sigurðsson sem varð bráðkvaddur 8 Janúar 2011, móðurömmu mína Sveinbjörgu Baldvinsdóttur sem lést 9 mars 2011 og móðurafa minn sem lést 5 mars 2005. Sakna ykkar sárt og hugsa mikið til ykkar. Megi hið eilífa ljós lýsa ykkur . Ykkar Ella

Elsku mamma þú kvaddir þennan heim 10 júlí 2011 södd lífsins erfiðleikum, minn kæri faðir þú kvaddir þennan heim 25 júní 1994 eftir erfið veikindi, hvílið í friði. Kveðja ykkar dóttir.

 

Fyrir yndislegu systurdóttur mína, Tinnu Hrönn. Þín er sárt saknað. Óska að ég gæti séð fallega brosið þitt og heyrt hláturinn þinn aftur. Þú varst ljósið og ert enn.
Kolla.

8. febrúar 2011 minn áskæri bróðir hefði orðið 47 ára í dag.... blessuð sé minning þín.  Heiða

13. janúar 2011.
Elsku pabbi minn þú ert með mér í bænum mínum.  Ég sakna þín og elska þig. Vallý

Ég kveiki á kerti fyrir son minn Jón Val Ómarsson f. 09.04.87 sem lést þ. 20.05.06. Guð veri með þér elsku Jón Valur. Mamma

Vil kveikja á kerti ,til minningar um elsku Pabba minn ,Sigurjón Magnússon sem lést 16 mars 2007,ég sakna þín svo mikið elsku Pabbi minn.
þín Dóttir Aðalheiður Sigurjónsdóttir

Fyrir son minn Valdimar Gunnarsson, sem lést í vinnuslysi 2003 aðeins 29 ára gamall. Elsku Valli við söknum þín öll en höldum samt áfram lífinu eins og þú hefðir viljað. Þú ert ljósið sem lýsir okkur og öll fallegu orðin sem um þig hafa verið sögð eru okkur mikil huggun. Mamma, pabbi, Axel og allir hinir í fjölskyldunni.

12. desember 2010
Okkar ástkæri vinur Ari Gunnarsson hefði orðið 50 ára í dag...blessuð sé minning hans kv Siggi og Dana Jóna.

 

Ég kveiki á kerti til minningar um systir mína Hrönn Jónsdóttir  sem lést á sviplegan hátt fyrir 20.árum 10.12.1990. Blessuð sé minning hennar

 

Ég vil kveikja á kerti fyrir hann Magga minn.Guðrún Dagný

 

Mig langar að kveikja á kerti fyrir dóttir mína Nathalia Rut sem fæddist andvana 20.febrúar 2004. Guð blessi þig fallega stelpan mín, elska þig og sakna þín:** M.S.

Fyrir son minn Valdimar Gunnarsson, sem lést í vinnuslysi 2003 aðeins 29 ára gamall. Elsku Valli við söknum þín öll en höldum samt áfram lífinu eins og þú hefðir viljað. Þú ert ljósið sem lýsir okkur og öll fallegu orðin sem um þig hafa verið sögð eru okkur mikil huggun. Mamma, pabbi, Axel og allir hinir í fjölskyldunni.

 

 

Mig langar til að kveikja á kertum til minningar um frænku mín Matthildi Ingólfsdóttur sem lést 16/9 sl. og tengdamóður mín sem lést 1/8 sl.

Blessuð sé minnig þeirra.

 



Sunnudagur 14. nóvember - Kveikjum á þessu kerti fyrir Ellu Dís sem er mjög veik núna - Kveikjumá kertum og biðjum fyrir henni.
 

Ég Sigrún Soffía kveiki á kerti fyrir einkabarn Jennýjar Hauksdóttur vinkonu minnar.

Gunnhildur Júlíusdóttir fædd 03.12.79.  Dáin 14.09.10. 

Guð geymi þig elsku fallega Gunnhildur mín. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Elsku elsku hjartans Jenný mín ♥♥♥ Christian, Dalli, ættingjar og vinir, Guð gefi ykkur styrk ....

 

Til elsku frænda minn hann Hannes meigi englar Guðs  umvefja þig og fjölskyldu þina
mikid a eg eftir ad sakna þin
 
þin frænka maggy

3. september 2010 -
Viltu kveikja á kerti fyrir okkur sem misstum elskulegan son og bróður í dag sem lést úr hjartaáfalli. Guð geymi þig elsku bróðir og mágur söknum þín mikið. Gústi, Rósa og fjölskyldur.
 

Til minningar um alla ástvini okkar sem eru farin Guð blessi minningu þeirra

Birgir og Lilja Akureyri.

 

Til minningar um alla ástvini okkar sem eru farnir Guð blessi minningu þeirra.
         Rósa og Gústi Vestmannaeyjum.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir mömmu, Ólafíu Magnúsdóttir sem lést 17 júlí 2009, og pabba, Pétur G Pétursson sem lést 9 janúar 2006.
Elska ykkur, sakna ykkur, hugsa um ykkur, langar að knúsa ykkur, sé ykkur.
Guðrún.

Mai 2010
Vil kveikja á kerti fyrir stelpunum sem að dóu í bílslysinu í Keflavík fyrir nokkrum dögum.
 Unnur Lilja&Lena Margrét  ... Ykkar er sártsaknað

Mig langar að kveikja á kerti fyrir yndislegan dreng sem fallinn er frá í blóma lífsins
Sigþór Ægirsson hvíl í friði elsku drengurinn okkar.

Ég vill kveikja á kerti fyrir elsku litlu ömmustelpuna mina Vilborgu Rún. Sem fæddist andvana þann 30. Júlí 2009 eftir 35 vikna meðgöngu. Við söknum hennar öll.

 

Kveðja Amma

Mig langar aðkveikja á kerti fyrir yndislega vinkonu sem alltaf var svo glöð og yndisleg.
Elsku Rósa mín, mikið á ég eftir að sakknaþín, hlátur þíns og gleði sem ávallt smitaði út frá sér.
Þín vinkona, Gréta.

Mig langar að minnast  langar að minnast  Árna Ragnar Árnason sem fæddist þann 9 Ágúst árið 1972 í Vestmannaeyjum og lést þann 21 Maí 2009 i bifhjólaslysi á Hringbraut. Þú munt lifa í okkar hjörtum Árni Ragnar minn, við munum sakkna þín.ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur að láta minningu þína lifa fyrir litlu dóttir þína handa Ragnheiðu Árnýju fædda 26.09.2009.
Elsku Árni Ragnar minn....mikið sakna ég þín, ég þarf svo mikið að tala við þig, ég þarf svo mikið að heyra röddina þína, ég þarf svo mikið að fá að faðma þig, ég þarf svo mikið að fá að nota öxlina þína, ég þarf svo mikið að fá að hlæja með þér, þarf svo mikið að fá að hjóla með þér, ég þarf svo mikið að fá að sjá þig með litlu fallegu dóttir þinni, ég þarf svo mikið að fá að heyra símann hringja með laginu þínu, ég þarf svo mikið að fá mér kaffibolla með þér, ég þarf svo mikið á því að halda að þú sért til staðar þegar ég þarf á þér að halda, ég þarf svo á að fá að heyra hláturinn þinn, fá að sjá brosið þitt, þarf svo að fá að sjá þig koma á hjólinu þínu til mín, þarf svo að fá að sjá þig með krökkunum þínum...
þín vinkona Guðrún...

17. des 2009
Mig langar að kveikja á kerti fyrir son minn elskulega sem fórst  í sjóslysi 13 mars 2007 við mynni Ísafjarðar. Nú kemur Avona María þín með sonin unga til Íslands í heimsókn, litla drenginn sem þú fékkst ekki að sjá elskan mín
Mega guðsenglar ávalt fylgja þér elskan ,Mamma
 

 

Mig langar að fá að kveikja á kerti fyrir  systurson minn sem féll frá í sumar, 26 ára gamall,
Hans er sárt saknað.  Lítillátur en skildi eftir sig stórt skarð í hjarta þeirra
sem þekktu hann.
 
kk, Auður Haralds

 

Kveiki á kerti fyrir Þórarinn Þorkel Jónsson, sem lést að kvöldi 23.nóvember 2009. Hvíl í friði kæri vinur, blessuð sé minning þín.

Arnheiður.

 

Kveikja á kerti til að biðja fyrir öllum þeim sem eiga við erfiðleika að stríða á eihvern hátt,megi kærleikurunn umvefja þá alla

26.05 2009
Langar til að kveikja á kerti fyrir hann elsku pabba minn Jóhann Sigurbjörnsson sem lést í gærmorgun

Þín dóttir Kristjana.

Langar að biðja þig að kveikja á kerti fyrir elskulegu fósturmóður mína Ásu..Ásgerði Jónasdóttur sem lést 12 apríl 2009..Hvíldu í friði og megi allir englar Guðs umvefja þig kærleik og hlýju elsku Ása mín;);) Þín Hanna Gunnur

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Ottó Bergvin Hreinsso, hann lést 4 maí síðastliðinn Kveðja,

 Daníel Helgason

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir litlu stelpuna mína.
 
Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða,
lof sé Guði, búin ertu' að stríða.
Upp til sælu sala
saklaust barn án dvala.
Lærðu ung við engla Guðs að tala.
 
Ég elska þig af öllu mínu hjarta.
Mamma
 

Vil kveikja á kerti fyrir vin minn Ottó sem lést núna fyrir stuttu. =

Mig langar til að kveikja á kerti til minningar um hana bestu ömmu mína Sigrúni Guðný Guðmundsóttir.
Hennar er sárt saknað af okkur öllum, ég hugsa til þín á hverjum degi elsku amma mín, við áttum svo ótal margar skemmtilegar stundir saman og sakna ég þeirra sárt! En það hjálpar mér að vita að þér líði nú betur uppi hjá guði elsku amma mín...*
mig langar að leyfa ljóðinu sem ég samdi til þín, fylgja með kertinu,,,*
hvíldu í friði elsku amma mín*
kv.litla siggan þín*

 

Svo strek, Svo stolt, Svo hlý, Svo traust, Svo falleg, Svo fín

Þú ert amma mín*

Ég elska þig svo mikið, fyrir að vera þú sjálf

Sama hvað á dinur þú ert minn besti vinur.

Að vita að ég mun ætið eiga þig að, sama hvað.

Það hlýar mér um hjartarætur!

Að vita að þú ávalt við bak mér stendur og heldur í mínar litlu hendur,

Hvíslar í eyru mín traustvekjandi orð, segir:

Vertu sterk, það er þitt lífsverk.

Ég veit þú munt ávalt hjá mér vera til að sjá hvað ég hef til bruns að bera.

Ég vil að þú vitir að í hjarta mínu áttu ávalt sérstakan stað,

Sama hvort við verðum hér eða þar.

Ég elska þig um ókomna tíð

Elsku besta amma mín....*

Til minningar um Gunnar Leó Leosson. Elsku Gunnar Leó, Mamma og pabbi vilja kveikja á kerti í þína minningu. Þín er sárt saknað elsku vinur.

Okkur langar að kveikja á kerti til minningar um elskulegan mág og svila Örn Ingólfsson sem lést 3.mars 2009. Blessuð sé minning þín, hvíl í friði. Regína og Sævar

Mig langar að fá að kveikja á kerti fyrir móður mína. Móðir mín lést að kvöldi 8. Apríl  2009. Elsku mamma

Sorgin og söknuðurinn er mikill. Mín eina huggun er að þér líður betur núna. Full af orku með lungun full af fersku lofti. Englunum hjá Guði hefur fjölgað um einn. Hvíldu í friði elsku mamma mín. Þín dóttir, Jackie

Fyrir Svanhildi og Nonna sem misstu litla drenginn sinn Valdimar Mána 25. mars

Ég vil kveikja á kerti til minningar um ástkæran eiginmann sem lést 4.mars s.l. og verður borinn til grafar á morgun Hann var ljúfmenni ,ástríkur riginmaður , faðir , afi og langafi við elskuðum hann öll. Góður Guð blessi minningu hans.

Mig langar til að minnast sonar míns Eríkur Þórðason sem fórst í sjóslysi 13.03.2007  og kveikja á kerti fyrir hann þú ert elltaf í huga mín sonur minn Kv Mamma
  Eitt kerti fyrir  svila míns Dennis Core sem lést 10 mars 2009,elsku Dennis mikið á ég eftir að sakna þín vinur,og ég skal styðja Hönnu þína sem nú er ein  með hundana ykkar.Kv.Erla svilkona

Við viljum kveikja á kerti fyrir elsku litlu Söru Rún Davíðsdóttur sem lést í dag 04.03.2009. Biðjum um styrk í sorginni handa foreldrum, öfum, ömmum og öðrum ættingjum og vinum. Fjölskyldan Engimýri 12, Garðabæ

'Eg vil kveikja á kerti til minningar um ástkæru systir mína og bestu vinkonu.Guðrún Björk Rúnarsdóttir var bráðkvödd á heimili sínu að morgni 23 janúar 2009 aðeins 37ára gömul. yndislegri persónu,systir og vinkonu er ekki hægt að hugsa sér. 'Eg sakna þín svo sárt. Hvíldu í friði kæra systir 'Eg elska þig.Þín Særún

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana ömmu mína lést sunnudaginn 15. janúar síðastliðinn.  Elsku amma þín verður sárt saknað en nú veit ég að þér líður vel og ert komin til afa sem tók eflaust vel á móti þér. Þín Malla

Ég vil kveikja á kerti fyrir einn besta vin minn, Egil Fannar, en hann lést 5.des 2004.  Hafðu það gott kallinn minn, ég sakna þín!!  Kv. Palli

Mig langar að kveikja á kerti fyrir afa minn, Jóhannes Ágústsson, sem lést 20. febrúar 2007.
Hann hefði orðið 74 ára þann 26. janúar nk. (2009)
 
Ég hugsa til þín oft á hverjum degi og vildi óska þess að þú hefðir ekki farið svona fljótt, þó ég viti að það var best fyrir þig. Vildi einnig óska þess að þú hefðir fengið að kynnast B betur og hann þér.
 
Það eru að koma tvö ár síðan þú fórst og alltaf á þessu tímabili (des - feb) þá líður mér mjög svipað eins og fyrir tveimur árum. Þá var ég frekar rugluð og gerði mér ekki alveg fulla grein fyrir því hvað væri að gerast. Sem er reyndar skiljanlegt, þú varst sá fyrsti og eini sem ég hef þekkti, missti og þurfti að berjast við að þola það. Ég sá þig síðast tveimur vikum fyrir 20. febrúar, og ég sé enn mjög mikið eftir því að hafa ekki farið oftar í heimsókn til þín á spítalann. Þetta er eitthvað sem ég get ekki fyrirgefið mér fyrir. Vildi óska þess að ég hefði komið allavega 4x á þessum 2 vikum sem þú áttir ólifað þarna. Man að ég sagði á þriðjudegi að ég ætlaði að koma til þín á miðvikudegi, en það var því miður of seint því þetta þriðjudagskvöld hringdi E og tilkynnti andlát þitt.
 
Annars þá þurfti ég bara að koma þessu frá mér einhversstaðar.
Ég sakna þín.
Ástarkveðjur, Írena.
 

Ég kveiki á kerti fyrir elsku vinkonu mína Huldu Lilju sem kvaddi í morgun 14. janúar. G. A

 

Vinsamlega kveikja á kerti fyrir mína kæru vinkonu Stellu Stefánsdóttur sem lést 17. ágúst 2007.Kærleikskveðja. Elín Lára Edwards

Langar að tendra ljós í miningu foreldra minna Friðriks og Birnu. Kveðja Sigtryggur

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Guðrúnu Evu og Bjarka sem eru í dag að jarðsetja litla drenginn sinn sem lést aðeins 2 vikna gamall...þessi litil engill kom í heiminn eftir aðeins 25 vikna meðgöngu...
Megi Guð styrkja þau í þessari miklu sorg og allir englar vaka yfir þeim.....
 
Kveðja Jórunn Fregn og fjölskylda...

Ég kveikja vil á kerti fyrir alla sem dáið hafa og alla sem munu deyja. Ég er búin að finna fyrir missi og ég vil samhryggjast öllum sem hafa þurft og þurfa að finna fyrir þessum missi.
 
Kveðja Oddný (Dr. Oddstein)

Þetta kerti er fyrir þig Egill minn, fyrst ég kemst ekki suður til að kveikja á því við leiðið þitt vinur.
Elska þig ávallt! Þín ElvaRún

Ég vil kveikja á kerti fyrir Birgir manninn minn sem lést 29.mars 2008 og mömmu mína sem lést 17.febrúar 2008. Ég sakna ykkar óendalega mikið og vil að þið vitið að ég elska ykkur alltaf. Kveðja Birna

Ég vil kveikja á kerti fyrir ættingja og vini sem ég hef þurft að kveðja....hvíl í friði Dana Jóna

Við viljum kveikja á kerti fyrri ömmu okkar hana Ingibjörgu Þórðardóttir  sem lést af  voldum krabbameins þann 29 júní.Kveðja Stefanía Hrund Guðmundsdóttir og Sandra Dröfn Jóhannsdóttir.

mig langar til að kveikja á kerti í minningu foreldra minna, bróðurs og systra. Árni

 

Mig langar því til að biðja þig um að kveikja á einu kerti núna, til minningar um elsku móðir mína hana  Þóreyju Ólafsdóttir, sem varð bráðkvödd aðfararnótt 6 Sept 2008.
Hún lagðist til svefns við hliðina á pabba mínum, í sumarhúsi þeirra 5 Sept, en vaknaði ekki aftur. Sorgin er þung og ofboðslega sár og því langar mig til að kveikja ljós fyrir hana og svo eitt fyrir okkur, pabba og börnin hennar sem eftir stöndum, en mamma var bara 66 ára gömul og yndisleg persóna og besta vinkona sem hugsast getur.
Elsku mamma, við söknum þín allveg ofboðslega mikið og hjörtun okkar eru full af sorg, en við trúum því að nú líði þér vel og við vitum að afi og nafna mín hafa tekið vel á móti þér á nýjum stað. Guð geymi þig elsku engillinn okkar.
            Fyrir hönd fjölskyldunnar, þín dóttir Elínrós Jóhannsdóttir, Dalvík.
Mig langar til að fá að láta fylgja hér lítið ljóð sem mamma skrifaði einu sinni til mín:
 
Ég elska þig hjartkæra dóttir mín,
því máttu aldrei gleyma.
Hugur minn leitar ávalt til þín,
Megi ást mín um hjarta þitt streyma.
 
          Ég elska þig mamma.
 

Ég vil kveikja á kerti fyrir frænku mína Maríu Báru Hilmarsdóttur sem lést þann 15. september 2008 aðeins 42 ára að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein, einnig vil ég kveikja á kertum fyrir dætur hennar sem misst hafa mikið,

Ég vil kveikja á kerti fyrir frænda minn Hauk Frey sem lést þann 9. júní 2006 hann var 24 ára, við söknum þín mikið elsku frændi. Sorgin er mikil.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Jóhann Ottó sem lést þann 10. oktober 2004 eftir erfiða baráttu við Krabbamein, Jói barðist eins og hetja hann var aðeins 21 árs. þín er sárt saknað kæri vinur

Ég vil kveikja á kerti fyrir Guðmund Jón (Mumma) sem lést af slysförum þann 5 mars 2004 aðeins 24 ára að aldri, þín er sárt saknað og hugur vinar þíns er alltaf hjá þér,

Ég vil kvekja á kerti fyrir Þórlaugu ömmu sem lést 4 nóvember 2007 og hefði orðið 90 ára þann 8 oktober síðastliðinn,

Ég vil kveikja á kerti fyrir Afa minn Vilbert sem lést 6. febrúar 1999. Ég sakna ykkar allra og þakka fyrir allar stundirnar sem við áttum saman.

ljósið er tendrað af aðdáun einni
líf sem er tekið af forvitni óttans
bróðir sem lifði á leiðinni beinni
broðir sem leitað sátta ei flóttans
 
kv þú veist addi

Mig langar að biðja þig að kveikja á kerti fyrir ástkæru vinkonu mina, Ástu Lovísu, sem lést úr krabbameini þann 30. maí 2007. Hún kvaddi okkur löngu fyrir aldur fram og sársaukinn er  mikill.

Langar að enda þetta á síðasta erindinu úr ljóði sem ég samdi eftir að hún dó.

 

Hvíl þú nú í hvílu þinni

hjartans Ásta mín.

Ég aðeins kveð þig þó að sinni

einn daginn ég kem til þín.

Sirrý Trampe

 

Ég langar að kveikja á kerti til minningar um ástkæra afasystur mína, Ingibjörgu Antoníusdóttir (f. 11. okt. 1921 - d. 4. okt. 2008). Hennar er sárt saknað.
Kveðja, Sigurjón í Borgartúni.

Fyrir alla þá sem elskuðu mig og ég elskaði og eru farnir.
Gugga

Ég vil kveikja á kerti fyrir vin minn sem lést í janúar, kær kveðja til þín vinur.

Ég kveiki á 2 kertum fyrir afa minn sem dó á sumardagin fyrsta 2008 þetta er BESTI afi sem einhver getur nokkurntíman óskað sér,ég sakna þín svo óendalega mikið að það líður ekki sá dagur sem ég hugsa ekki til þín. Jarðaförin þín var svo falleg að ég gat ekki hætt að gráta og einnig dagbjört systir ég þurfti að vera kletturinn i fjölskyldunni af því allir grétu svo sárt,, en ég gerði það fyrir þig elsku afi..Lögin og sálmurinn sem var sungið til þín voru svo falleg, mamma og amma sakna þín einnig rosalega mikið og geta ekki hætt að hugsa um þig..
Það vantar þig svo rosalega mikið herna heima og það sakna þín allir svo sárt.. Ég elska þig rosalega mikið,,núna ertu komin á betri stað þar sem þér líður vel og við sjáumst þegar minn tími er komin..
Ástarkveðja þín afa stelpa Bryndis Ben og Jóhann Gunnar..
 

Ég kveiki á kerti fyrir Ólafíu Guðrúnu Ottósdóttir sem lést nú á mánudaginn 29. September 2008 eftir  langa en hetjulega baráttu við krabbamein. Ég votta eiginmanni þínum, börnum, tengdabörnum og barnabörnum, mína dýpstu samúð og meigi góði Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg ykkar.
Rósa Jóhannsdóttir og fjölskylda
 

Ég vil kveikja á kerti fyrir móður mína sem lést 28. Mars 2008 eftir stutta baráttu við krabbamein. Minning þín lifir í okkur elsku mamma. Þín dóttir Rósa og fjölskylda

Ég vil biðja þig að kveikja á kerti fyrir móðir mína Þóreyju Ólafsdóttur sem varð bráðkvödd þann 6. sept sl. Þín er sárt saknað elsku mamma og megi ljósið lýsa þér um nýja stigu ástarengillinn minn.      Þín dóttir Anna
 

Ég vil kveikja á kerti til miningar um hana ömmu mína Þóreyju Ólafsdóttur sem lést 6.september s.l Þín er sárt saknað elsku amma mín, meigi englar guðs leiða þig og vernda. Takk fyrir allt elsku engillinn minn
 
Þín nafna Nanna Þórey

Okkur langar að kveikja ljós fyrir litlu stelpuna okkar sem hefði orðið aðeins mánaðargömul í dag.
mamma og pabbi

Ég vil kveikja á 6 kertum fyrir hann konna minn en ég sakkna hans mikið .. við áttum oft margar góðar og skemmtilegar stundir saman og það var alltaf hlegið mikið þegar við horfðum á bíomyndir elskan mín guð verði með þér þú varst tekin burt alltof snemma en ég hef þá tru að þér líða vel nuna ... þar sem þú ert með ömmu þinni og afa við sjáumst kveðja mamma
 

Mig langar að kveikja á minningarkerti fyrir elsku pabba minn sem lést af slysförum í Mars. Elsku pabbi við söknum þín öll svo sárt og lífið er svo tómlegt án þín. Við reynum að halda áfram að gleðjast og halda þannig minningu þinni á lofti.
Þín dóttir Sesselía.

Ég kveiki á kerti fyrir mannin minn og pabba okkar Birgir sem dó 29.mars sl. Elsku Birgir þú veist ekki hvað það er mikill söknuður og sorg heima hjá okkur núna, ég og börnin þin söknum þín svo mikið. Okkur finnst ekki sangjarnt að þú skildir þurfa að fara frá okkur því við elskum þig svo mikið.

Birna og börnin þín

Ég kveiki á kerti fyrir vinukonu mína Maríu Báru sem lést 15 september úr erfiðum veikindum. Elsku María Bára þín er sárt saknað af mörgum. Þín Birna.

Ég vil kveikja á kerti fyrir ömmu mína, Kristínu Gestsdóttur, sem lést á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 14. september.
 
Ég sakna þín svo mikið. Kveðja, Andri.

Elsku Tobba,Friðbert,Karolína og fjölsyldan öll, mig langar að kveikja á kerti fyrir ykkur og KIdda
sem er ný látinn . Guð gefi ykkur styrk. Kveðja Sossa ,Ómar og fjölskylda.

Ég kveikji á kerti fyrir litla lífið sem myndaðist í móðurkviði en hætti að slá sjö vikna,Guð varðveiti þig og verndi.Kveðja amma

Ég vil kveikja á keri fyrir minn mann sem lést fyri 11 mánuðum

Ég vil kveikja á kerti fyrir litla drenginn minn sem fæddist andvana á 22 viku meðgöngu. Mamma saknar þín rosalega en er að reyna að vera sterk. Mamma og pabbi og systkyni elska þig elsku Alexander Breki.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir tengdaforeldra mína Svein Þorsteinsson  sem lést 26 nóvember 2007 og Jónínu K Vilhjálmsdóttir sem lést 25 desember 2007.

Ég kveiki á kerti til minningar um hana Völlu vinkonu. Ég veit að hún er hjá guði og hefur það gott en ég veit líka að margir eiga erfitt með að skilja hversvegna hún þurfti að fara svona snemma. Kveiki á kerti fyrir Döbbu, Palla og Ómar. Megi guð hjálpa ykkur til að finna tilgang með lífinu og að fá fallegu telpuna heim til mömmu sinnar.Kveðja, Pálína.

Við viljum kvekja á kerti í minningu ástkærs eiginmanns míns,föður ,tengdaföður, afa og langafa Vébjöns Eggertssonar sem lést 24júni 2008. Þín verður sárt saknað.  Hvíl í friði.

Ég vil kveikja á ljósi fyrir elskulegan maka og vin minn sem lést í október 2005.
"Hjartablóm" minning þín er ljúf huggun og sannur kærleikur.Þín Anna

Ég kveiki á kerti fyrir pabba minn Þráinn Sigtryggson.Eins og Ég geri á hverjum degi síðan þú lést.Ég sakna þín mjög mikið.Björk og fjölsk.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Sjöfn Helgadóttir sem dó í dag 22 maí 2008mig langar að þakka henni fyrir löng og góð kynni. Ég sendi Höllu Sjöfn æsku vinkonu minni og Rögnu móðir hennar og öðrum ættingjum samúðar kveðjur.Kærar kveðjur Elva Hrönn

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir elskulegan  manninn  minn  Hjálmar Pétursson  úrsmið frá Akureyri og bið góðan guð að geima hann blessuð sé mining hans. Hjördis Einarsdóttir.

Ég kveiki á kerti fyrir vini mínum Gunnari Leó Leossyni og bið Guð að blessa hann og árin hans á jörðinni.  Þ.G.

Ég kveiki á kerti til minningar um þig elsku Reynir minn, maðurinn minn og besti vinur minn.  Þú lést í september 2005. Ég sakna þín.  Halldóra

Við viljum senda þér ljósiðmeð því að kveikja á kerti elsku litli Markús Már sem lést 8 sept.aðeins 6 daga gamall. Þökkum fyrir að hafa haft þig hjá okkur í 6 daga það var yndislegt. Biðjum góðan Guð að stirkja mömmu þína, og okkur öll.Við munum aldrei gleyma þér litli engill.

Beta amma og Brynjar afi.

Mig langar að kveikja á 6 kertum fyrir pabba minn sem dó 26 mai.Ég sakna þín mjög mikið.
Þinn sonur Kristján.
 

5. maí 2008. Ég vil kveikja á kerti fyrir frænku mína Vilborgu Ósk Ársælsdóttur sem var kistulögð í dag..Mikil  sorg.Kveikji  líka á öðru kerti fyrir pabba hennar sem dó 2007 Ársæll Guðsteinsson.
Hrafhildur Jóhannsdóttir.

Eg vil kveikja á kerti fyrir hann Krissa minn og Halldór mikið sakna eg ykkar en minningin lifir  knús og kossar ...soffia Ragnarsd

Við viljum kveikja á kerti fyrir frænda okkar hann Begga og Mæju konunar hans sem að misstu litlu stelpuna sína hana Maríu Ósk sem fæddist andvana þann 1. maí 2008. Megi guð styrkja ykkur á þessum erfiðum tíma.
 
kv. Fjölskyldurnar 3 í Hólminum

Ég vil kveikja á kerti fyrir hana Áslaugu mína sem lést 14 apríl 2000.
Elsku, elsku besta vinkona mín ég sakna þín sárt og minning þín lifir hér hjá okkur að eilífu.
Þín vinkona KSS 

Mig langar að kveikja á kerti í minningu ástkærs bróður míns, Hugins Heiðar!
Ég sakna þín ástin mín & Elska þig !!! þín stærsta systir Hafrún Eva.

Við kveikjum á kerti til minningar um elsku vinkonu okkar Ástu Ingvarsdóttur og fyrir alla þá sem eiga um sárt að binda. Guð geymi ykkur öll. ÁBS og fjölskylda.

Ég vil kveikja á kerti fyrir  Huginn Heiðar  Valgerði tengdarmömmu minni. Minning ykkar lifir.

Fyrir litla drenginn minn sem dó fyrir nokrum árum hann heitir Guðni Rúnar Guðjónsson. Þessi litli drengur lifði í tíu daga og dó útaf erfiðir fæðingu takk fyrir að gefa mér tækifæri að Minnast hans með því að kveikja á kerti. Gréta.

Ég kveiki á kerti til minningar um elsku Gunnar Örn. Látum ljósið loga innra með okkur öllum og veita okkur styrk. Dísa og öll börnin.

Viljum kveikja á 3 kertum fyrir elsku afa sem lést 28. mars 2008, í dag er vika síðan og söknuð jafn sár við elskum þig afi hestanna ástarkveðjur Gunni, Valdi og Tindur.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Dagbjörtu Rós, sem er að berjast við að fá dóttir sína aftir til sín aftur, hana Caitlin Victoriu. Mig langar líka að fá að kveikja á kerti fyrir mömmu hennar sem lést 4 mars og líka fyrir alla hennar fjöldskildu þá séstaklega  ómar því missir hans er mikil kær kv guðbjörg og fjöldsk guð veri með ykkur . Hilmar og Guðbjörg.

Kvekja á kerti fyrir æskuvikonu mína, sem jörðuð verður á föstudag. Kveðja Guðrún.

Kveikjum á kerti til minningar um Bigga okkar sem frá okkur var tekinn alltof snemma, þín er sárt saknað. Soffía, Jón, Gunnar, Halla, Bjössi, Siggi og Magga.

Fjölskyldan á Kambi vill kveikja a kerti fyrir elsku Gunnar Örn Til að minna okkur á ljósið innra með okkur, af því að hann sagði allaf að okkar innra ljós muni lækna öll mein.

Hvíl í friði elsku afi hestanna ástarkveðja strákarnir á Strönd.

Þú varst ljósið í lifi okkar allra, takk fyrir allt pabbi minn.

Við kveikjum á kerti á fyrir fyrir litlu hetjuna hann Huginn Heiðar sem lést 24.mars 2008. Guð blessi þig litli vinur og gefi fjölskyldu þinni styrk á erfiðri stundu. Blessuð sé minning þín. Samúðarkveðja Silla, Hilmar og börn á Blönduósi

Ég vil tentra á kerti fyrir Huginn Heiðar Guðmundsson. Elsku Mummi, Fjóla og fjölskylda Guð varðveiti ykkur og veri með ykkur. Kær kveðja Kristín Svava.

Mig langar að kveikja á Kerti fyrir Huginn Heiðar og fjölskyldu hans... Huginn Heiðar lést á annan í páskum...

Við kveikjum á kerti fyrir Andrés Sævar. Elsku Pabbi og Afi við söknum þín ávallt. Guð geymi þig. Kveðja Hanna Bára og Alexander Freyr.

Við kveikjum á kerti til minningar um Ástu Ingvarsdóttur og fyrir alla þá sem eiga um sárt að binda. Guð geymi ykkur öll og gefi ykkur styrk í sorginni. ÁBS og fjölskylda.

Ég kveiki á kerti fyrir Önnu Jónsdóttur sem lést í dag. Elsku Kalli og fjölskylda guð gefi ykkur styrk á þessum sorgartíma. Þið eigið samúð mína alla. Ég vil einnig kveikja á kerti fyrir föður minn, Sigurð Tryggvason, sem lést 4. september sl. Elsku pabbi minn ég sakna þín sárt. Lóa Sigurðardóttir

Ég vil kveikja á kerti fyrir Huginn Heiðar sem lést aðfararnótt 24. Mars 2008 aðeins þriggja ára. Elsku Fjóla, Mummi, Natan, Hafrún, Guðjón og Ásdís, Guð styrki ykkur í sorginni. Kveðja Stína Blöndal.

Ég kveiki á kerti fyrir Jakob Örn Sigurðarson 10 ára sem lést 9 mars 2008.

Megi ljós Guðs lýsa þér.Kveðja Dagbjört ömmusystir.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Ívar Pál Ársælsson sem var tekinn frá okkur fyrir akkurat 3 árum í dag 23.03.08. aðeins 18 ára gamall.Ein æðislegasta persóna sem ég hef nokkurtíman kynnst. Fyrrverandi kærasti og einn af mínum bestu vinum . Einnir vil ég kveikja á kerti fyrir Dóra og Sigga sem létust í bílslysi 17.juni 2005 á leiðinni til Akureyrar.Þakka Guði innilega fyrir að Vikingur Ívar og Börkur lifðu þetta af. Ykkar er sárt saknað , megi minning ykkar vara i hjörtum okkar að eilífu.

- Mæja litla.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir elskulegan son minn Eírki Þórðarson,sem fórst 13.03.2007 í sjóslysinu við minni Ísafjarðar
Elsku sonur minn,nú er eitt ár frá því að þú kvaddir þennan heim ,sem er en ótrúlegt að svo sé,
eg sakan þin svo mikið  elsku Eiki minn megi guðs englar alltaf vaka yfir þér.Og við pössum einkadóttur þína fyrir þig ljúfur hún sendir þér saknaðar kveðjur .
Þín Mamma.

Ég og synir mínir viljum kveikja á kerti til minningar um Guðmund Afa og Langafa okkar sem lést 21.nóv. 2008. og hennar Fríðu Ömmu og langömmu okkar sem lést 21. mars ´06 og Hólmars Inga Frænda okkar sem lést 18. nóv. 2001. Við söknum ykkar sárt.

Ég kveiki á kerti fyrir yndislegan lítinn vin minn, Jakob Örn Sigurðarson. Þú verður alltaf í hjörtum okkar. Þín Begga.

Ég kveiki á kerti fyrir ástkæran eiginmann minn Richardt Svendsen sem lést 17. Janúar 2008..

Blessuð sé minning hans. Minningin lifir.

Þín Heiða

Viltu kveikja á kerti fyrir hann Bigga minn, ég sakna hans alltaf jafn mikið, en reyni að halda í þá fullvissu að honum líði vel þar sem hann er. En þetta er samt alltaf jafn sárt.
Kv. Lilja

Ég vil kveikja á kerti fyrir Dagbjörtu Rós, sem er að berjast við að fá dóttir sína aftir til sín aftur, hana Caitlin Victoriu. Mig langar líka að fá að kveikja á kerti fyrir mömmu hennar sem er að berjast við krabbamein og er orðin svo veikburða. Að lokum vil ég fá að kveikja á kerti fyrir allri fjölskyldu hennar sem þurfa að reyna svo mikið núna.
 
Kveðja Ólöf

Við viljum kvekja á 6 kertum fyrir frænda okkar.   Guð geymi þig elsku Heiðar Örn

Kveðja
Sanur Elíson, Kristófer Þór, Svanur Ingi, Þóra Sigurbjörg, Inga Lára,  Agnes Gunnarsdottir

Ég og Adam sonur minn viljum kveikja á kerti fyrir látna ættingja okkar. Megi ljósið ávallt skína. Guð geymi ykkur.

Sigríður Elín og Adam Halldór

Elsku pabbi og Sólveig frænka, ég sakna ykkar, ég hugsa svo oft til ykkar, ég veit að ykkur líður vel hjá almáttugum Guði okkar.

Sigríður Elín.

Við kveikjum á kerti til minningar um Rebekku Ingvarsdóttur og fyrir alla þá sem eiga um sárt að binda. Guð geymi ykkur öll. ÁBS og fjölskylda

Kærleikskveðja EE og BJ.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Ósk ömmusystir mína sem lést í dag, sakna þín mikið. Guð geymi þig. Eydís Ósk.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir ömmu mína sem að dó 11.12.04 eftir erfiða baráttu við veikindi. Veit að afi tók á móti þér og hugsar vel um þig þar sem þú ert núna. Elsku amma mín, ég sakna þín svo mikið og mér þykir endalaust vænt um þig...

þín ASJ

Ég vil kveikja á kerti fyrir elsku drenginn minn hann Svanberg Inga Ragnarsson sem lést 25. 04. 2006 aðeins 14 ára. Ég sakna þín hvern einasta dag við hvern einasta andardrátt. Þú fór allt of snemma og svo fyrirvaralaust. 
 
Ég vil kveikja á kerti fyrir tengdaföður minn Sigurð Jónsson sem lést 01. 03. 2005 
 
Einnig vil ég kveikja á kerti fyrir Svanberg Inga Ragnarsson eldri sem lést 22. 01. 2008.
 
Ykkar er sárt saknað en það er huggun harmi gegn að þið eruð allir saman og þið gætið drengsins míns.
 
Blessuð sé minning ykkar.
Sigrún Ögmunds.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Konráð Guðmundsson, minn kæra vin og frænda sem lýsti upp margar stundir með tilvist sinni og nærveru í þessari veröld, og veit að hann gerir enn í dag í öðrum heimi . Þinn frændi, Gísli Hvanndal .... Guð blessi þig frændi ...

Mig langar til að biðja þig um að kveikja á einu kerti, til minningar um Ebbu Guðrúnu Eggertsdóttur, en hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í gær, 8 febrúar.
Megi hið eilífa ljós lýsa henni í nýjum heimkynnum, og einnig bið ég algóðan guð, að styrkja og vernda börnin hennar og fjölskyldur þeirra.
Með þökk, Ella, Dalvík

Til minningar um afa Íngólf,ömmu Mörtu ,ömmu Dídí,afa Oddgeir,Vini mina Janus,Rikka,Gísla og Jón Inga.Til minningar um Hjört frænda og síðan og ekki síst til elskulegs föður míns Jón Rúnars.
Kærleiks og ástarkveðja frá mér Hafdís.

Fyrir Sigríði Björnsdóttur. Blessuð sé minning  þín elsku  frænka.

Guð geymi þig Kærleikskveðjur Valdís Skúlad.

Langar til að kveikja á kerti til minningar um ömmu mína Laufeyju Jakobsdóttir og Afa minn Magnús Finnbogason.Blessuð sé minning þeirra

Arna María.

Ég vil kveikja á kerti til minningar um móður mína Júlíu Bergmannsdóttur. Í dag eru 2 ár liðin frá því að hún lést eftir langa og hetjulega baráttu við brjóstakrabbamein.
Blessuð sé minning þín elsku mamma mín.
Ég elska þig MEST og sakna þín ofboðslega sárt.
Þín dóttir Berglind

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Hauk sem var okkur öllum í fjölskyldunni mjög kær og fyrir afa minn sem ég náði aldre að hitta og ömmu mína sem dó þegar
ég var mjög ung og 2 frændum mínum sem týndust og fundust aldrei.
 kh

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elskulega Afa mins sem lést í janúar 1997,,yndislega góður maður þarna á ferð. 

Og svo langar mig lika að kveikja á Kerti fyrir elskulegu ömmu mina sem lést einnig sama ár í apríl,,hennar er sárt saknað..

Í  dag 20 janúar eru liðin 5 ár síðan að Pabbi minn (Sigurður Jón Kristmundsson) kvaddi þennan heim.
Og langar mig að kveikja á kerti til minningar um hann.
Ég sakna þín sárt elsku pabbi minn.
 
Til pabba míns.

Ég elska þig svo mikið af því að þú elskar mig, mér finnst þú frábær og æðislegur og þú verður það alltaf. Ég elska þig vegna þess að þú vinnur svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak yfir höfuðið. Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og gefur mér nammi. Ég elska þig vegna þess að þú ert PABBI MINN!!!!. Faðir er sá sem veldur því að þér finnst þú ómissandi þótt engum öðrum finnist það.

Þín dóttir Sylvía

Ég vil kveikja á kerti til minningar um afa Magga. Í dag er ár síðan hann dó.

Ástar og saknaðarkveðjur, Þórunn.

Okkur langar til að kveikja á kerti fyrir litla vininn okkar hann Kristinn Veigar.

Kveðja frá Vilhjálmi og mömmu.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir vinafólk okkar sem eignuðust andvana barn í dag.

Póstur