
|
23. júní 2004 Dagur 91 Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli
|
Það fer enginn í skóna hennar Helgu Snorra sem stýrir leikskólanum Fagrahvammi og gæsluvellinum á Dalvík styrkri hendi, hún á efnileg börn sem ég hef aðeins kynnst og Jói hennar er góður kall. Arnar bróðir hennar er góður vinur minn og í denn þegar þau bjuggu á Völlum í Svarfaðrdal gisti ég nokkrum sinnum þar...en mig minnir nú að Helga hafi aldrei verið heima...alltaf á djamminu að skemmta sér og öðrum. |
Selur BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.