19. júní 2004 Dagur 87

Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka  mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli

Dagurinn í dag

julli.is

Sigrún Valbergsdóttir er móðir mín í leiklistinni, hún leikstýrði mér í fyrsta skipti er ég steig á svið hjá L.D. Hún var kennarinn minn í leikstjórn í þrjú ár og hefur hvatt mig og stutt af heilum hug. Fáum hef ég kynnst eins skipulögðum og sanngjörnum eins og Sigrúnu....heimurinn væri betri ef það væru fleiri eins og hún. Til gamans þá get ég sagt með stolti að við séum kollegar.....Sigrún er Kynningarfulltrúi Borgarleikhússins og ég mun taka við álíka starfi hjá Leikfélagi Akureyrar í ágúst.

 Selur  BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.