
|
16. júní 2004 Dagur 84 Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli
|
Ásta Arnardóttir er ótrúleg manneskja, sönn og trú sínum skoðunum. Hún hefur kennt við leiklistarskóla Bandalagsins í nokkur skipti og þá yfirleitt verið með leikara á grunnnámskeiði, hún sér um jógamorgunleikfimi á hverjum morgni líka, hún hefur einstaka, hreina og sterka nærveru, þannig að það er kannski ekki skrýtið að það var erfitt að ná mynd af henni einnri...þar sem allskyns furðuverur dragast að henni líkt og þessir tveir , Ármann sem er annar af tveimur nemendum skólans sem hafa verið frá upphafi og Gulli frá Akureyri sem er nýnemi. |
Selur BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.