13. júní 2004 Dagur 81

Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka  mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli

 

Dagurinn í dag

 

julli.is

Og áfram líða dagarnir í skólanum við nám og leik frá morgni til kvölds, námið er mjög lærdómsríkt, skemmtilegt en afar erfitt. Lilja Nótt er ein af bekkjarsystrum mínum á trúðanámskeiði hjá Ágústu Skúladóttur. Lilja er frábær leikari og skemmtileg, ég var svo heppinn að leika á móti henni á lokadeginum og komst þá að því að þær sögusagnir um að hún væri yfirmáta fljót að læra texta væri á rökum reistur "oh my god" hún  lærði hann eiginlega með því að lesa hann einu sinni yfir.

 Selur  BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.