
|
10. júní 2004 Dagur 78 Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli
|
Á morgun hefst leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga að Húsabakka í Svarfaðardal, þetta er í áttunda sinn sem skólinn er starfræktur. Freyr Antonsson er að sækja skólann í þriðja sinn í leikstjórnarnámi, Freyr er snillingur mikill, hvort heldur sem um er að ræða leiklist eða kvikmyndir og svo er hann góður ljósmyndari við Freyr höfum verið herbergisfélagar í skólanum frá því að hann kom fyrst. |
Selur BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.