
|
8. júní 2004 Dagur 76 Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli
|
Klukkan er rétt að verða átta og tugir starfsmanna á leið heim úr vinnu í frystihúsinu á Dalvík, búnir að vinna um nóttina og skila þjóðarbúinu miklu. Birna Sveinbjörnsdóttir, Birna í Sælandi er búinn að vinna í frystihúsinu lengur en ég man og það er svo skondið að þessar konur sem eru búnir að vinna þarna lengi þá vinna þær alltaf betur og betur og hraðar...þær eru orðnar hoknar af reynslu. Oft var ég búinn að fá mjólk og eitthvað gott bakkelsi hjá Birnu þegar ég og Kristmundur sonur hennar lékum okkur saman, takk fyrir það Birna. |
Selur BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.