
|
4. júní 2004 Dagur 72 Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli
|
Andrea Víðisdóttir er sumarsparisjóðsgella. Hún var í Danmörku í vetur með honum Pedda sínum sem er líka að vinna á Dalvík, þau eru svona afgreiðslupar því hann er að afgreiða í pósthúsinu. Andrea er hvers manns hugljúfi og gott fyrir stað eins og Dalvík að hafa eina svona, allt frá því að hún var í leikhópnum "Við" og til dagsins í dag hefur hún verið dugleg í félagsstörfum. |
Selur BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.