
|
1. júní 2004 Dagur 69 Hérna er gæluverkefnið mitt það hófst 25. mars 2004 og stendur til 25. mars 2005...á hverjum degi ætla ég að taka mynd af fólki sem verður á vegi mínum..við vinnu eða í leik, að nóttu sem degi, heima eða á förnum vegi, í gleði og sorg. ..........Júlli
|
Torfi Þórarinsson, Torfi á Bakka var í morgun að dæla olíu á trailer sem hann er að keyra þessa dagana. Torfi hefur keyrt út um allan heim, hann á rútu og dráttarbíl, var að vinna upp í Kárahnjúkum og svona mætti lengi telja, Torfi hefur lent í ýmsu skondu á ferðum sínum og það er ábyggilega efni í heila bók allt sem á daga hans hefur drifið...það eru persónur eins og Torfi sem gefa lífinu lit. Torfi er nýgiftur og með barn á leiðinni |
Selur BenQ stafrænar myndavélar eins og ég nota.